Stefnan
1.
Um þessa stefnu
Bestinghouse er umhugað um persónuvernd og
öryggi gagna sem fyrirtækið meðhöndlar. Í persónuverndarstefnu Bestinghouse
kemur fram í hvaða tilgangi persónuupplýsingum er safnað og hvernig farið er
með slík gögn. Markmið okkar er að viðskiptavinir, aðrir viðsemjendur og
einstaklingar, eins og við á hverju sinni, séu upplýstir um hvernig fyrirtækið
safnar og vinnur persónuupplýsingar.
Um meðferð BESTINGHOUSE á persónuupplýsingum fer samkvæmt gildandi
lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga eins og þau eru á hverjum
tíma hér á landi, sem og persónuverndarstefnu þessari.
Stefna þessi nær til vinnslu
persónuupplýsinga í allri starfsemi BESTINGHOUSE gagnvart fyrrverandi, núverandi og verðandi
viðskiptavinum félagsins. Stefnan nær einnig til annarra en viðskiptavina í
þeim tilvikum þegar þeir hafa samskipti við BESTINGHOUSE í viðskiptalegum eða öðrum tilgangi, heimsækja
félagið eða vef BESTINGHOUSE eða taka
þátt í viðburðum á vegum BESTINGHOUSE .
BESTINGHOUSE ehf. kt. 510407-0916, Gjáhellu 13a, 221 Hafnarfirði,
er ábyrgðaraðili þeirra persónuupplýsinga sem veittar eru fyrirtækinu eða
fyrirtækið aflar um þig. Hægt er senda skriflega fyrirspurn til fyrirtækisins
um meðferð persónuupplýsinga á netfangið personuvernd@Bestinghouse .is.
2.
Hvað eru persónuupplýsingar?
Persónuupplýsingar eru sérhverjar
persónugreindar eða persónugreinanlegar upplýsingar um hinn skráða, þ.e.
upplýsingar sem beint eða óbeint má rekja til tiltekins einstaklings, samkvæmt
skilgreiningu persónuverndarlaga. Einstaklingur telst persónugreinanlegur ef
unnt er að pesrónugreina hann, beint eða óbeint, svo sem með tilvísun í
auðkenni eins og nafn, kennitölu, staðsetningargögn, netauðkenni eða einn eða
fleiri þætti sem auðkenna hann í líkamlegu, lífeðlisfræðilegu, erfðafræðilegu,
andlegu, efnalegu, menningarlegu eða félagslegu tilliti.
Gögn sem eru ópersónugreinanleg teljast
ekki persónuupplýsingar.
3.
Söfnun og meðhöndlun persónuupplýsinga
Dæmi um persónuupplýsingar sem kunna að
vera afhentar BESTINGHOUSE eða BESTINGHOUSE
kann að afla eru:
• Grunnupplýsingar: Nafn, kennitala,
heimilisfang, símanúmer, netfang, og/eða aðrar grunnupplýsingar.
• Samskiptaupplýsingar: Upplýsingar um
samskipti þín við BESTINGHOUSE , t.d. skriflegar upplýsingar um samskipti í
netspjalli, tölvupósti eða bréfum, svo og munnlegar upplýsingar sem kunna að
vera veittar á starfsstöð BESTINGHOUSE eða í símtali.
• Upplýsingar um auðkenni: Hvers konar
afrit af lögbundnum eða rafrænum skilríkjum, svo sem afrit af peróuskilríki ,
eða upplýsingar um hvernig þú auðkennir þig og eftir hvaða leiðum.
• Fjárhagsupplýsingar: Upplýsingar sem
tengjast núverandi og fyrrverandi viðskiptum og viðskiptasögu, m.a. um stöðu og
tegund reikninga og upplýsingar um greiðslukort og greiðslusögu vegna viðskipta
þinna við BESTINGHOUSE .
• Upplýsingar sem safnast við rafræna
vöktun: Hljóð- og myndbandsupptökur sem safnað er með eftirlitsmyndavélum á
starfsstöðvum BESTINGHOUSE .
• Aðrar upplýsingar: Framangreind
upptalning er í dæmaskyni og því ekki tæmandi. BESTINGHOUSE kann að vinna með aðrar persónuupplýsingar en
þær sem hafa verið taldar hér upp, í samræmi við persónuverndarlög og stefnu
þessa.
Tilgangur vinnslunnar og heimild
BESTINGHOUSE safnar persónuupplýsingum um viðskiptavini,
tengiliði og forsvarsmenn viðskiptavina í þeim tilvikum sem viðskiptavinir eru
lögaðilar sem og tengiliði birgja og annarra samstarfsaðila. Að langmestu leyti
fer vinnsla BESTINGHOUSE á
persónuupplýsingum fram á grundvelli upplýsinga sem veittar hafa verið BESTINGHOUSE
að frumkvæði viðskiptavinar.
Hins vegar getur komið til sjálfstæðrar
upplýsingaöflunar BESTINGHOUSE , svo sem frá stjórnvöldum, og fer slík vinnsla
ávallt fram á grundvelli lögmætra hagsmuna og í samræmi við persónuverndarlög.
Slík upplýsingaöflun og vinnsla BESTINGHOUSE getur t.d. verið vinnsla grunnupplýsinga úr
þjóðskrá og varðveisla og vinnsla með viðskiptasögu viðskiptavinar.
Vinnsla persónuupplýsinga BESTINGHOUSE fer einkum fram á grundvelli eftirfarandi
vinnsluheimilda:
Lögmætra hagsmuna: Þegar BESTINGHOUSE hefur lögmæta hagsmuni af því að vinna
persónuupplýsingar í ákveðnum tilgangi, svo sem með myndavélaupptökum í
verslun, í öryggis- og eignavörsluskyni.Samningsskylda: Þegar BESTINGHOUSE þarf að vinna úr persónuupplýsingum til að
uppfylla samning sem BESTINGHOUSE hefur
gert eða er að undirbúa að gera við þig.Lagalegar skyldur: Þegar BESTINGHOUSE þarf að vinna úr persónuupplýsingum þínum til
að uppfylla lagaskilyrði/reglur sem um starfsemi BESTINGHOUSE gilda, almennt eða í einstökum
tilfellum.Samþykki: Þegar þú hefur veitt samþykki fyrir vinnslu og eftir
atvikum haft frumkvæði að því að veita BESTINGHOUSE persónuupplýsingar.
BESTINGHOUSE safnar persónuupplýsingum um viðskiptavini
sína einkum og sér í lagi til að veita þeim aðgang að vörum og þjónustu í
samræmi við ákvæði viðskiptasamninga, til að tryggja að þjónusta sé löguð að
þeirra þörfum og til að miðla til þeirra upplýsingum í markaðslegum tilgangi.
Markmiðið með upplýsingasöfnun er fyrst og fremst til þess að þjónusta
viðskiptavini betur og aðlaga og bæta upplifun þeirra af þjónustu BESTINGHOUSE .
BESTINGHOUSE safnar einungis persónuupplýsingum sem
nauðsynlegar eru til að veita ráðgjöf eða þjónustu hverju sinni. Kjósi
viðskiptavinur að veita ekki persónuupplýsingar kann að vera að BESTINGHOUSE geti ekki útvegað viðkomandi aðila vörur eða
veitt þjónustu.
BESTINGHOUSE nýtir persónuupplýsingar einvörðungu í þeim
tilgangi sem þeirra var aflað til.
BESTINGHOUSE safnar og varðveitir ýmsar persónuupplýsingar
um viðskiptavini. Ólíkum persónuupplýsingum kann að vera safnað eftir því hvort
einstaklingur er sjálfur í viðskiptum við félagið eða hvort hann komi fram
fyrir hönd lögaðila í viðskiptum við félagið, t.d. birgja.
Viðskipti einstaklinga
BESTINGHOUSE safnar upplýsingum um viðskiptavini sína í
tengslum við einstök viðskipti. Þannig safnar BESTINGHOUSE m.a. samskiptaupplýsingum viðskiptavina,
upplýsingum um þá vöru/þjónustu sem keypt er, t.d. vörunúmer og verðsamning,
samskiptaupplýsingar og um upphæð úttektarheimildar. Byggir vinnslan á samningi
eða beiðni viðskiptavinar um að gera samning við félagið. Sé um
reikningsviðskipti að ræða kann að vera unnið með upplýsingar um lánshæfismat
og úr vanskilaskrá á grundvelli lögmætra hagsmuna félagsins.
Gerist viðskiptavinur brotlegur við lög í
viðskiptum sínum við BESTINGHOUSE , kann að vera unnið með upplýsingar um brot,
t.d. um óheimil reikningsviðskipti eða skráningarnúmer ökutækis tengist það
broti, á grundvelli lögmætra hagsmuna félagsins. Þá kann brot að vera tilkynnt
til lögreglu.
BESTINGHOUSE kann ennfremur að senda markpóst til
viðskiptavina sinna á grundvelli lögmætra hagsmuna félagsins. Viðskiptavinir
geta alltaf mótmælt slíkri vinnslu með því að ýta á þar til gerðan hlekk í
markpóstum, senda póst á netfangið personuvernd@Bestinghouse .is eða hafa
samband við þjónustuver BESTINGHOUSE í
síma 515 4000.
Póstlisti
BESTINGHOUSE vinnur með tölvupóstfang, sem einstaklingur
hefur skráð og samþykkt notkun á fyrirfram, í útsendingum á markpósti til
einstaklinga á póstlista félagsins. Enn fremur getur einstaklingur skráð
upplýsingar eins og t.d. nafn, kennitölu, heimilisfang, símanúmer og kyn. Þá er
óskað eftir samþykki hans til þess að vinna með upplýsingar um kaup hans á
vörum og þjónustu BESTINGHOUSE í því
skyni að stunda markaðssetningu á vörum og þjónustu BESTINGHOUSE og þeim aðilum sem BESTINGHOUSE velur til samstarfs. Með skráningu þessara
valkvæðu upplýsinga samþykkir einstaklingur að BESTINGHOUSE megi samkeyra upplýsingar um hann úr öðrum viðskiptakerfum
félagsins, s.s. sölukerfi og CRM-kerfi (e. Customer relationship management),
til þess að geta veitt betri þjónustu og sent út einstaklingsmiðaðri skilaboð.
Þessi vinnsla byggir á samþykki og er einstaklingi alltaf heimilt hvenær sem er
að afturkalla samþykki sitt og afskrá sig af póstlista félagsins með því að ýta
á þar til gerðan hlekk í markpóstum, senda póst á netfangið personuvernd@Bestinghouse
.is eða hafa samband við þjónustuver BESTINGHOUSE í síma 515 4000.
Rafrænt eftirlit í verslunum
Þar sem BESTINGHOUSE er með rafrænar eftirlitsmyndavélar og þeir
viðskiptavinir sem heimsækja BESTINGHOUSE kunna því að vera teknir upp á mynd. Vinnsla á
þeim upplýsingum sem safnast með myndavélaeftirliti byggir á lögmætum hagsmunum
félagsins, enda fer vinnslan fram í eigna- og öryggisvörsluskyni. Myndefni er
geymt eins lengi og nauðsynlegt er miðað við tilgang vinnslu en aldrei lengur
en 90 daga, nema nauðsyn beri til að varðveita það lengur vegna gruns um
refsiverðan verknað, slyss eða annars sambærilegs.
Vefkökur
Þegar vefsvæði BESTINGHOUSE vistar vefkökur í tölvu eða á snjalltæki þínu.
Vefkökur eru litlar textaskrár sem geyma upplýsingar til að greina notkun á
vefsvæðum Bestinghouse og bæta upplifun
notenda. Vefkökur eru einnig notaðar til að sníða vefsvæðið að þínum þörfum,
t.d. til að stuðla að virkni síðunnar, vista stillingar þínar, vinna
tölfræðilegar upplýsingar, greina umferð um vefsvæðin og í markaðslegum
tilgangi.
Þegar vefsvæði BESTINGHOUSE vistar vefkökur og þú heimsækir vefsvæði BESTINGHOUSE
gefst þér möguleiki á að hafna, að hluta
eða öllu leyti, notkun á vefkökum. Vakin er einnig athygli á því að hægt er að
breyta stillingum á flestum vöfrum þannig að þeir taki ekki á móti vefkökum,
sem og að fjarlægja vefkökur.
Forsvarsmenn fyrirtækja og stofnana
Komi einstaklingur fram fyrir hönd
samstarfsaðila BESTINGHOUSE , s.s. birgja, verktaka eða viðskiptamann sem er
lögaðili, kann BESTINGHOUSE að vinna með
tengiliðaupplýsingar hans, s.s. nafn, símanúmer og tölvupóstfang. Þá kann BESTINGHOUSE
að vinna með samskiptasögu og eftir
atvikum reikningsupplýsingar. Þessi vinnsla er félaginu nauðsynleg til að geta
uppfyllt skyldur sínar á grundvelli samnings við viðkomandi samstarfsaðila. Þá
kann félaginu að vera skylt að vinna með upplýsingar á grundvelli lagaskyldu,
s.s. bókhaldslaga.
Ábendingar og/eða athugasemdir frá
viðskiptavinum
Ef einstaklingur sendir inn ábendingu eða
kvörtun mun BESTINGHOUSE almennt vinna
með samskiptaupplýsingar hans, s.s. nafn og netfang, og efni þeirrar kvörtunar
eða ábendingar sem hann hefur kosið að koma á framfæri.
3.
Miðlun persónuupplýsinga
BESTINGHOUSE miðlar ekki persónuupplýsingum til þriðja
aðila nema að fengnu samþykki, í samræmi við ákvæði viðskiptasamninga, á
grundvelli lögmætra hagsmuna félagsins eða á grundvelli lagaskyldu.
BESTINGHOUSE áskilur sér rétt til að miðla
persónuupplýsingum til þriðja aðila (vinnsluaðila) sem er þjónustuveitandi,
umboðsmaður eða verktaki BESTINGHOUSE í
þeim tilgangi að veita þjónustu sem beðið hefur verið um.
BESTINGHOUSE deilir upplýsingum, í tölfræðilegum tilgangi,
með vinnsluaðilum sem vinna með fyrirtækinu við gæða- og markaðsstarf. BESTINGHOUSE
afhendir vinnsluaðilunum einungis þær
persónuupplýsingar sem eru nauðsynlegar fyrir þá í framangreindum tilgangi.
Gerður er samningur við slíka vinnsluaðila, þar sem þeir undirgangast skyldu um
að halda upplýsingum um einstaklinga öruggum og nota þær einungis í
framangreindum tilgangi.
Allir vinnsluaðilar BESTINGHOUSE og samstarfsaðilar hafa undirritað viðeigandi
trúnaðaryfirlýsingu og vinnslusamning í samræmi við ákvæði persónuverndarlaga. BESTINGHOUSE
tryggir þannig vernd persónuupplýsinga í
samræmi við lög og reglur um persónuvernd eins og þau eru á hverjum tíma, þ.á
m. með mótun öryggisstefnu um meðferð og öryggi persónuupplýsinga og setningu
öryggis- og verklagsreglna eins og krafist er í persónuverndarlögum.
Í þeim tilfellum þegar þriðji aðili
(vinnsluaðili) fær aðgang að persónuupplýsingum, tryggir BESTINGHOUSE trúnað og að gögnum sé eytt að vinnslu
lokinni. BESTINGHOUSE leigir aldrei eða
selur persónuupplýsingar um viðskiptavini.
4.
Hversu lengi eru persónuupplýsingar geymdar?
BESTINGHOUSE mun ekki vinna persónuupplýsingar lengur en
tilgangur stendur til eða lagagrundvöllur heimilar. Persónuupplýsingar eru
unnar svo lengi sem samningsbundin skylda, samþykki eða lagalegar skyldur
krefjast, allt eftir því hvaða tilgangur og lagaheimild liggur að baki vinnslu.
Mismunandi varðveislutími á almennt við eftir tegund og eðli persónuupplýsinga.
Upptökur úr rafrænu myndavélaeftirlitskerfi
BESTINGHOUSE eru almennt geymdar í 90
daga, í öryggis- og eignavörsluskyni.
Vakin er athygli á því að í sérlögum kann
að vera kveðið á um lágmarksvarðveislutíma tiltekinna upplýsinga eins og
bókhaldsgagna, upplýsinga vegna tolla- og skattalöggjafar og upplýsinga á
grundvelli gagnaöflunar vegna eftirfylgni laga um aðgerðir gegn peningaþvætti
o.fl.
5.
Öryggi gagna
BESTINGHOUSE leggur áherslu á að tryggja að varðveislu
persónuupplýsinga sé háttað á öruggan máta. BESTINGHOUSE tryggir að viðeigandi tæknilegar og
skipulagslegar öryggisráðstafanir séu gerðar til að tryggja mesta öryggi gagna
hverju sinni.
Þessum ráðstöfunum er ætlað að vernda
persónuupplýsingar gegn því að þær glatist eða breytist fyrir slysni og gegn
óleyfilegum aðgangi, afritun, notkun eða miðlun þeirra. Breytingar og
leiðréttingar á persónuupplýsingum
Öll samskipti við vefþjóna BESTINGHOUSE eru að sjálfsögðu dulkóðuð yfir öruggar
vefslóðir (HTTPS).
6.
Réttindi þín
Einstaklingur á rétt á og getur óskað eftir
að BESTINGHOUSE veiti honum upplýsingar
um þær persónuupplýsingar sem fyrirtækið býr yfir sem og um vinnslu og meðferð
upplýsinga um hann. Þá kann einnig að vera að einstaklingur hafi rétt á að fá
afrit af upplýsingunum nema lög kveði á um annað. Við ákveðnar aðstæður getur
einstaklingur farið fram á það við félagið að við sendum upplýsingar, sem hann
hefur sjálfur látið okkur í té eða stafa frá honum, beint til þriðja aðila.
Einstaklingur á rétt á því að óáreiðanlegar
persónuupplýsingar um hann séu leiðréttar. Þá á einstaklingur rétt á því í
vissum tilvikum að persónuupplýsingar um hann sé eytt, t.d. ef upplýsingarnar
eru ekki lengur nauðsynlegar í þágu þess tilgangs sem þeirra var upphaflega
aflað.
Vilji einstaklingur ekki láta eyða
upplýsingum sínum, t.d. vegna þess að hann þarf á þeim að halda til að verjast
kröfu, en vill samt sem áður að þær séu ekki unnar frekar af hálfu félagsins
getur hann óskað eftir því að vinnsla þeirra verði takmörkuð.
Sé vinnsla á persónuupplýsingum
einstaklings byggð á lögmætum hagsmunum félagsins á hann einnig rétt á að
mótmæla þeirri vinnslu.
Framangreind
réttindi einstaklingsins eru þó ekki fortakslaus. Þannig kunna lög að skylda
félagið til að hafna ósk um eyðingu eða aðgang að gögnum. Þá getur félagið
hafnað beiðni hans vegna réttinda félagsins, s.s. á grundvelli hugverkaréttar,
eða réttinda annarra aðila, s.s. til friðhelgi einkalífs, telji félagið þau
réttindi vega þyngra. Réttindi þín til að mótmæla vinnslu í markaðssetningar
tilgangi er þó fortakslaus.
Einstaklingi
verður tilkynnt og gefin skýring ef töf verður á afgreiðslu eða ef ekki er unnt
að verði við beiðninni að fullu eigi síðar en mánuði frá móttöku hennar.
Einstaklingur getur kvartað til Persónuverndar (www.personuvernd.is) ef BESTINGHOUSE
neitar að afhenda honum ákveðnar
upplýsingar eða ef einstaklingur er ósáttur við vinnslu BESTINGHOUSE á persónuupplýsingum.
Ef upp
koma aðstæður þar sem að félagið getur ekki orðið við beiðni einstaklings mun
félagið leitast við að útskýra hvers vegna beiðninni hefur verið hafnað, þó með
tilliti til takmarkana á grundvelli lagaskyldu.
7. Endurskoðun stefnu
Persónuverndarstefna
BESTINGHOUSE er endurskoðuð reglulega og
stefna félagsins er að vera eins skýr og berorð um hvernig félagið safnar
persónuupplýsingum og í hvaða tilgangi upplýsingarnar eru notaðar.
BESTINGHOUSE áskilur sér rétt til þess að breyta
persónuverndarstefnunni hvenær sem er, án fyrirvara. Persónuverndarstefnu
BESTINGHOUSE má finna á www.Bestinghouse
.is og tekur uppfærð stefna gildi þegar hún hefur verið birt á heimasíðu
félagsins. Allar fyrirspurnir um meðhöndlun persónuupplýsinga og
persónuverndarstefnu BESTINGHOUSE skal
senda á netfangið bestinghouse@bestinghouse .is.
Þessi persónuverndarstefna var sett þann í. janúar 2025þ